Alltaf HRESS

viddinn ávallt illa ferskur

27.01.2007 08:11:35 / viddinn

VÁÁÁÁÁÁ ÞETTA VAR LANGT HELGARFRÍ

jamm þetta var langt og gott helgarfrí heheheh... nei nei segi svona. ætla að reyna að byrja blogga aftur sjaum til hvernig það gengur. en sumarið 2006 var þannig lagað mjög gott en samt ekki sáttur. fór til Búlgaríu og ekki orð um það meir, kom heim og flutti út frá Söru minni, ekki enn búin að ná mér eftir það, en flutti útí Kópavog á fínan stað, keypti mér allt sem mig vantaði og hélt ég væri góður en bara kom samt ekki útá pari. Rúnar æskufelagi minn flutti inn med mer og við erum búnir að eiga finar stundir, samt yfirleitt að gera ekkert eftir vinnu og svo djamma um helgar, svona rútína, ekki mjög skemmtileg rútína en samt eitthvad sem hefur gerst. Ég hætti sem verslunarstjori i kronunni eftir 2 manuði um leið og eg kom fra bulgariu og tok mer lengra fri, fekk svo vinnu hja Himneskri hollustu a örlitið lægri launum en i raun meiri laun miðað við vinnuti,a og friðindi svo sem bill og simi, mer likar vel þar en samt med mikla heimþrá heim til fjolskyldunnar. Haustid var skitsæmilegt ekkert meira en það, for til Englands a Liverpool leik með pabba og það var frábært. Fór svo heim um jolin in 10 daga og það var æðislegt, lyður enn illa eftir það langar svo heim, en eigilega get það ekki vinnulega seð.

en vildi bara láta heyra i mer. er samt finn þrátt fyrir neikvæðnina.

kv Viddinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 20:06:37 / viddinn

Helgarfrí um helgina, snilldin ein

Jamm maður hefur ekkert verið að blogga undanfarið, einfaldlega að drukkna í vinnu vegna prófa starfsfólks, er búin að vinna 2 helgar í röð og samanlagt 19 daga án þess að sofa út en er núna komin í langþráð helgarfrí sem verður vonandi ánægjan ein. Svo á þriðjudaginn fer Sara sem er með mér í krónunni í smá sumarfrí til 2 júní og ég þaraf leiðandi einn með búðina á meðan sem verður örugglega bara gaman og jafnframt mikil áskorun fyrir mig sem verður gaman að takast á við en þetta gerir það að verkum aðmar er að vinna einhverja 20 daga í röð aftur og verður að sætta sig bara við það, fæ reyndar aukalega borgað og svo tekur hún fyrir mig helgi þegar eg er i fríi svo þetta kemur út á pari bara.

Ég er að deyja úr spenningi fyrir morgundaginn en fyrir þá sem ekki vita þá er úrslitaleikurinn í enska bikarnum klukkan 14 á morgun Liverpool og West Ham eigast þar við í 125 úrslitaleiknum í ensku bikarkeppninni og er maður nett stressaður fyrir leikinn. Ég mun mæta uppá Players um 11 leytið í fyrramálið og byrja að Hella ímig Bjór og bara skemmta mér og ef leikurinn vinnst verður djammað frameftir öllu.

Annars er allt gott að frétta bara. Frábært að sumarið sé komið og veðrið búið að vera frábært undanfarið og maður búin að grilla bara einhverja 5-6 síðustu daga sem er bara gaman. Maggi og Rakel alltafmeð mér og sörunni í því og alltaf tekinn Kani í leiðinni sem er ALLTAF jafn gaman. Svo styttist óðum í að ég og Saran förum til Búlgaríu í frí og feitt djamm það er 4 júlí og tíminn þangað til verður snöggur að líða, Vinna eins og mófó út maí og svo byrjar HM í júní og svo bara BLESS við farin. Er að spá í að byrja fríið viku fyrir ferðina og bara grilla og horfa á HM áður en ég fer en það kemur allt íljós bara hvernig það fer. En í haust verður sumarfríið klárað það er ákveðið, allaveganna 3 vikur nuna i julý og svo verður pottþétt farið á Anfield í haust og líka eitthvað annnað eins og, vika á spáni eða portúgal eða tekin einhver góð borgarferð í einhverja 5-7 daga.

En þetta er orðið verulega gott held ég bara og ég bið góðan guðum að geyma ykkur bara.

Heyrumst Viddinn...


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 09:14:03 / viddinn

Gleðilegt sumar...

Jamm sumarið er komið eins og við öll sáum í snjórigninguhaglélinu sem var í gær, ekta íslenskt sumarveður eins og maður tekkir það best. Vonandi heldur sumarið bara áfram að vera svona æðislegt.

Annars halda bara frídagarnir áfram hjá manni, maður hélt í allan gærdag að það væri mánudagur en neinei það var nottla föstudagur og stuttur dagur hjá mér til 15 og helgarfrí. Alveg magnað.

En í dag er sennilega stærsti fótboltaleikur tímabilsins þegar Liverpool tekur á móti Chelski á heimavelli Man Utd, Old Trafford í undanurslitum ensku bikarkeppninar. Maður er frekar stressaður enda við ekkert grín að sigra lið sem á meira af peningum en allt en eg er bjartsýnn og spenntur og í raun bið ég ekki um meira þessa helgina en sigur í þessum leik. Það halda allir aðdæáendur annarra liða með Liverpool frekar en peningadollunni þar sem allir eru komnir á það að hata þetta chelsea lið meira en allt annað. Ég vil því biðja alla sem vettlingi geta valdið fyrir 16 í dag að spenna greipar og loka augunum og biðja góðan guð að vera með mínum mönnum í Liverpool í dag og veita þeim allt það sem hann getur til aðgeta landað sigri úr þessari viðureign.

Annars var það ekkert fleira að sinni.

kv Viddinn    


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 21:49:13 / viddinn

ALLT ad gerast um páskana!!!

Jamm páskahelgin i fullum gangi. Var ad vinna skírdag og svo í gær frá 9-17 en kom svo aftur um 19 til þess að panta allt fyrir þriðjudagin þar sem er lokað i dag og morgun. Hafdi val um að gera það i gærkvoldi eða í dag, vildi ljuka því sem er best afloknu og var i vinnunni til 23 i gærkvoldi, búðin gríðarlega tóm og mér brá bara tegar eg var búin að panta þurrvöruna, aldrei verið jafn mikið pantað og líka mjög mikið pantað í mjólkurkæli,kjöt og grænmeti svo það er ljóst að ég er að fara að taka á því á þriðjudag þegar ég mæti til vinnu sem er svo sem alltilagi.

Saran mín fór í sveitina hans Magga hennar Rakelar systur í gær með barnið og lánaði mér bílinn sinn á meðan þar sem minn er i ruglinu, pústiðað detta undan, verd ad láta kíkka á þetta eftir helgi bara, sjóða þetta saman. En ég semsagt einn í kotinu og við hittumst hérna nokkur heima hjá mér í gærkvoldi og vorum vakandi til 7 í morgun þá var ég alveg búin og aðrir líka. Vaknaði svo i hadeginu til að sjá mína menn í Liverpool vinna Blackburn á útivelli, Fowler með enn eitt sigurmarkið sem er frábært. Dagurinn búin að vera æðislegur eins og páskarnir allir bara.

Er í fríi á morgun líka og stefnan sett á djammið í kveld, Allir að fara ad djamma í kvöld, verður án efa brjálæðislega gaman að tví.

Svo er það bara ad sofa allan daginn á morgun þangað til Saran mín kemur heim með Rakeli systur og Magga að taka okkar venjulega mánudag, O.C, kani og Lost svo er þa bara að vinna a þriðjudaginn stutt, miðvikudaginn til 18, frí á sumardaginn fyrsta og vinna svo stutt á Föstudaginn og komin i helgarfrí.

En bið ykkur öll vel að lifa.

Viddinn Kveður.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 21:48:24 / viddinn

Ný skoðanakönnun og úrslit úr seinustu orðin klár.

Jamm hér eru úrslitin úr seinustu




» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 21:38:05 / viddinn

Brjálað að gera í vinnunni!!!!!

Jamm Viddinn er komin heim frá Akureyri, Átti þar frábæra Helgi frá Föstudagskvöldi og fram á Mánudag og var tetta náttúrulega bara snilldin ein en samt alltaf gott að koma íborg óttans á nýjan leik og Hitta Söruna og pakkið allt saman.

En núna er páskatörnin í gangi í vinnunni og bara brjáðal að gera sem er bara Jákvætt og skemmtilegt er að fíla mig í botn þessa dagana og er bara jákvæður og ekki skemmdi það fyrir að Krónan pakkaði Bónus saman i verðkönnun sem tekin var á mánudaginn hehehe gaman að því. Var að vinna allan daginn í gær og í dag og mæti svo eldhress fyrir 8 í fyrramálið og verð eitthvað frameftir, fer svona eftir tví hvað verður að gera bara. Maður á svo frí á Föstudaginn langa sem verður æðislegt en mætir svo álaugardaginn sem verðurlangur og svo aftur frí í 2 daga.

Annars er bara allt gott að frétta af stráknum. Þaðstyttist í sumarfríið hjá manni sem verður tekið frá 30 júní til 21 júlí álaunum og svo spurning hvort maður taki sér eitthvað auka í ágúst eða eitthvað ef mann langar að gera eitthvað en þarsem égá bara 3 vikur álaunum þá yrði það launalaust en það kemur allt saman bara íljós. Verður enn betra á næsta ári þá mun ég eiga fullt frí sem er 5 vikurá launum. Það er virkilega gott að fá ekki orlof og eiga bara fríá launum því það gerir það að verkum að maður tekur almennilegt frí og það er eitthvað sem mann veitir sko ekkert af í þessum bransa.

En ég um leið og ég óska ykkur öllum gleðilegra páska bið ég góðan guð um að geyma ykkur og blessa ykkur. ps ég er á bíl.

Kveðja Viddinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 10:47:35 / viddinn

Strákurinn kominn á akureyrina..

Jamm maður tók ákvörðun í gærkvöldi klukkan 8 að skella sér norður án þess að vita hvort það væri yfir höfuð eitthvað flug eftir um kvöldið og þá hvort væri laust, en ég tók eitthvað blautt útúr þvottavélinni þar sem allt mitt drasl var i tvotti og henti i tösku, brunaði niður á flugvöll og tékkaði á þessu, þá var mér tylkinnt að það væri ein vél að fara klukkan 9 en hún væri pakkfull og 3 á undan mér á hopplista svo líkurnar voru engar en ég ákvað samt að bíða og sja, svo var seinkun á vélinni og stúlkan búin að kalla upp 2 af þessum 3 og að lokum þann 3 en það fór þannig að 2 af þeim mættu ekki svo hun kallaði mig upp 20 min eftir að vélin átti að fara, jújú Viddinn kom hlaupandi og henti sér um borð. Algjör snilld og maður var kominn rúmlega tíu í gærkvöldi og skellti sér aðeins heim og hitti fólkið og losaði sig við töskurnar, sýðan kíktum við út og sátum inná Dátanum og drukkum bjór og spjölluðum í rólegheitunum og hittum liðið úr bænum. Bara mjög gaman.

En maður var vaknaður 9 í morgunn svona þokkalegur ekkert meira en það. Fjölskyldan er að fara í fermingarveislu á eftir og ekki séns að ég nenni i hana, ætli maður hafi það ekki frekar bara gott í dag og njóti þess að vera heima.

Svo er spurning hvort maður fari heim á morgunn ( annaðkvöld ) eða mánudaginn, hefði viljað fara á mánudaginn en þá þarf ég að redda mér fríi sem er ekkert sérstaklega auðvelt en maður vinnur í þessu, þýðir ekkert að svekkja sig á þvi ef maður fer bara annaðkvöld.

En annars er strákurinn bara dúndurhress og hlakkar til kvöldsins.

Kveðja Viddinn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 23:30:48 / viddinn

nýtt ummig..

Jamm ef tið flettið niður á síðunni og farið í ýmislegt sjáið tið viddinn að svara Spurnigum, gaman að kikka á það,

Vil einnig benda á að það er ný skoðanakönnun a leiðinni og viddinn ætlar að reyna að vera duglegri að blogga.

Hef bara ekki tíma í meira í bili en kikkið á þetta nýja og látið í ykkur heyra.

kv Viddinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 16:17:52 / viddinn

Maður er enn á lífi..

Núna er maður að reyna að bloggða í 3 skipti síðan seinast, í 2 síðustu skipti hefur allt eyðst út..

Annars er Viddinn bara góður, var búin að vinna klukkan 3 í dag sem er snilldin ein, elska þá daga semég get hætt klukkan 3.

Það er svo sem ekkert sérstakt að frétta sýðan seinast,jumm var tetta svakalega afmæli hjá Söru síðastliðið laugardagskvöld, fullt af fólki og bara stemmning, eg sofnaði reyndar klukkan eitt sem kom sér mjög vel þar sem maður turfti aðmæta í vinnu um morguninn.

Er reyndar orðinn mjög treyttur á því að helgarnar mínar í vinnunni hitta ALLAR á þær helgar sem eg mundi vilja vera í fríi, td afmælið hennar söru, Árshátíð kaupás, Páskarnir og verlunarmannahelgin, er hægt að vera svona óheppinn???? væri maður á hinni helginni næðimaður þessu öllu en ætla samt að reyna að vera í fríi um versló ef við fáum einhvern 3 aðila inn i sumar sem getur tekið helgar.

Ég er að verða mjög sáttur við mína menn í Liverpool þeir eru að komast i dúndrandi gír núna og hreinlega raða inn mörkunum þessa dagana unnu i bikarnum á þriðjudagskvöldið 7-0, svo er leikur við Everton i hádeginu á laugardaginn og það alltaf svakaleikir, spurning hvort halli þori að horfa með mér, það fór ekki vel síðast þegar Liverpool vann þá 1-3um jólin...

Er líka að fíla það hvað mánudagar eru komnir i mikið uppáhald hjá mér. 2 geggjaðir tættir i sjonvarpinu O.C og Lost og svo eru maggi og rakel alltaf hjá okkur á mánudögum og spilum við alltaf kana á milli þáttanna, bjargar alveg tessum gríðarlega mikla þunglyndisdegi.

Svo er maður í fríi um helgina sem er geggjað, var veikur i seinasta helgarfríi svo það er langt síðan maður fékk almennilegt helgarfrí.

En hef ekkert meira að segja í bili

kveðja Viddinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 22:29:08 / viddinn

Af hverju er ekki komin 4 júlý...

shit hvað mig hlakkar til að fara til Búlgaríu, get ekki beðið maður, ég og Saran eigum eftir að brillera þarna allan tímann, sjit hvað verður kikkað í spilavíti, farið á jetski, og í fallhíf eftir bát, vatnagarðurinn og djammað feitast er þa ekki Sara??? Annars verdur tessi helgi fín, vinna stutt báða dagana, mæti i vinnu i fyrramalið milli svona hálf ellevu og hálf tólf og fer og sé Liverpool vinna Man Utd og síðan sér maður Sylviu nótt rúlla upp eurovison annað kvöld.. Annars er afar rólegt kvöld í gangi núna, ekkert að ske...

Annars hefur lífið gengið sinn vanagang bara hjá Viddanum, búin að vera soldið uppá stöð2 undanfarið, Liverpool er að vakna til lífsins aftur núna sem betur fer og svakalegur leikur i hádeginu á morgun sem við verdum að vinna... Allaveganna er ég helv spenntur fyrir tessum leik... Ég er að fíla mig helvíti vel í krónunni og ALLS ekki á  leið þaðan og aftur í bónus fyrir þá  sem eru að velta tví fyrir sér...

Annars er ég bara mjög sáttur við það að myrkrið er að hverfa og farið að birta á ný, það lifnar svo helviti mikið yfir manni tegar myrkrið fer, djöfulsins tunglyndi tetta myrkur...

Svo sem ekki mikið að frétta nema að ég er að fara í örorkumat á þriðjudaginn útaf árekstrinum sem ég lenti í á jóladag 2003, jamm tetta tekur ansi mikinn tíma svona stöff, bakið á manni alltaf í döðlum sem er skelfilegt og þaðvirðist tví miður ekkert ætla að skána en svona er lífið...

Ef ég heyri ekki aftur í ykkur þá er ég dáin úr fuglaflensu....

kveðja Viddinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:35:47 / viddinn

Djöfulsins tunglyndi...arggggg...

Þvílík hörmung að vera púllari í dag að eyða tvemur tímum í að sjá Liverpool tapa    2-0 fyrir Charlton er skandall djöfulsins fokking svekkelsi en svona erlífið, það er ekki allt eins ogmaður vill að það sé...

Annars er allt gott að frétta af viddanum bara, maður er byrjadur á stöð 2 á fullu núna aftur eftir gott hlé þar og byrjar bara með látum tók góðan 28 túsund kall fyrir 5 klukkustundir í gær og vonandi verdur áframhald á því á morgun og hinn, hrikalega gott að fá þennan aukapening...

Annars er frí hjá mér um helgina en er að spá í að mæta á stöð 2 álaugardaginn allaveganna, nýta tímann tegar er svona gott að gera tar, annars veit ég ekki hvað verður umhelgina er að hugsaum að hafa hana bara rólega eins og þá seinstu var rosalega notalegt svo maður tali nu ekkium sparnaðinn á peningum mjög nice...

Hef svo sem ekkert meira að segja að sinni, ætla að koma mér í rúmið bara, er ad deyja úr treytu, kannski spurning um að koma sér inni rum svo það verði ekki sofnað í sófanum enn eina ferðina, var rosalega bjartsýnn í gær og fór ogleigdi mér mynd eftir stöð 2 klukkan half ellevu flightplan og ætlaði að meika það, saran beið eftir mér en viti menn eg meikaði 35 minutur þá var ég rotaður í sófanum og vaknaði ekki fyrr en hálf 6 þar og færði mig inni rúm mjög spennandi hehehe en maður er orðinn vanur tessu, vakna nu reyndar oftast upp í sófanum kannski 2-3 en ekki hálf 6 það var frekar ótægilegt þar sem ég var búin að stilla klukkuna inní herbergi á 6 til að geta vaknað og stillt hana aftur eins og eg geri alltaf snúsa hana alltaf frá 6-8 svona tiu sinnum en ég meikaði ekki að vakna svo ég stillti hana á 7 og snúsadi hana þaðan til 8, jamm gaman að þessu.

en ég er farin að sofa, góða nótt bara, heyrumst fersk...

kvedja Viddinn...   


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 15:48:32 / viddinn

Bara rólegheit í gangi...

Jamm vikan öll er bara búin að vera mjög róleg og fín, ekki mikið búin að gera annað en að vinna, en það helsta er að maður borgadi ferdina til búlgaríu svo ekki verdur aftur snúið með hana.  Maður fylgdist svo með handboltanum og kikti a magga og rakeli á fimmtudagskvoldið og svo aftur í gær horfdi á nip tuck og idolið bara mjög fínt allt saman. Mætti svo i vinnu i morgun klukkan 11 og var farin fyrir 2 heim og dúndraði mér i bakarí og er núna bara í rólegheitunum að fylgjast með enska boltanum, mjög fínt að eiga svona rólega og nice helgi bara. Kannski aðelda með Rakeli og magga í kvöld og svo verður maður náttúrulega að sjá sylviu i kvöld vona innilega að hún vinni tetta veitir ekki af að hrista aðeins uppí hlutunum  . Svo er bara aðmæta i vinnu i fyrramálið og panta og síðan heim þannig að á morgun er maður nánast í fríi.. Chelsea-Liverpool ámorgun maður verður að sjá það og vona innilega að Liverpool nái að gera eittthvað af viti á móti tessum ógéðum og peningaveldi rússans en er samt ekki bjartsýnn á það því miður.

En þetta er bara gott í bili held ég

kveðja Viddinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 18:29:38 / viddinn

Búlgaría í sumar, Fowler kominn heim og frí um helgina verdur tad betra???

Jamm þá er búið að bóka ferð á Búlgaríu og varð sá fallegi dagur 4 júlí fyrir valinu, glæsilegt 4 stjörnu hótel með sjúkum garði og málið steinlegið, reyndar erum við að að talaum5oghálfan tíma í flug sem er nett geggjun en maður verður aðláta sig hafa það bara. Jamm þetta verður bara geðveikt og gaman að hafa eitthvað til þess að láta sér hlakka til 158 dagar iss það er nú ekki neitt fyrir 14 geðveika daga hehehe...

Jamm svo sá maður þær fréttir núna rétt áðan að guðinn okkar púllara er kominn heim á nýjan leik og þar á ég ekki við neinn annan en Robert Bernard Fowler hvern annan, maður getur ekki annað en glaðst yfir tví enda var svekkelsið gríðarlegt tegar hann fór á sínum tíma árið 2001,

Svo er bara frí um helgina og allt að gerast, maður er byrjaður í krónunni í mosó og líkar bara vel þar, mjög þægilegt að turfa bara ad keyra i 2 minutur i vinnuna og sleppa við umferðina, maður getur bara sofið til 8 og mætt skömmu síðar í vinnuna, annars er eg bara mjög ferskur nuna, sofnaði 7 i gærkvöldi og náði sennilega lengsta svefn sem eg hef tekið i ansi langan tima, var með tennan tvílíka höfuðverk tegar eg kom ur vinnu um 5 i gær og lagdist inni rúm eftir handboltaleikinn og sofnadi þó það hafi ekki verið ætlunin en svaf til 8 i morgun og var heldur betur útsofin svo ég maður ætti að geta vakað eitthvað i kvold...

Hérna eru myndir af hótelinu sem ég verð á í Búlgaríu í sumar..

Jamm ekki er það svo verra að hafa barinn þarna i lauginni, maður á sennilega eftir að synda á hann i ófá skiptin..

Annara bið ég að heilsa í bili

Viddinn


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 18:14:27 / viddinn

Frí um helgina SNILLDIN ein

Jamm loksins fær madur frí um helgina, búin að vinna alla daga síðan 2 jan alveg glatað svo eg bíð bara eftir föstudeginum, veit svo sem ekki hvað maður gerir umhelgina en það verdur eitthvað sniðugt bara, mamma og pabbi að kikka i borgina svomadur hittir tau eitthvað og svo er nottla boltinn á laugardaginn og svona... En ég var búin snemma i dag eda um 4 sem var mjög gott bara, rólegt að gera svo ég og sara létum okkur bara hverfa snemma í dag. Kvöldið i kvold verdur sennilega bara eitthvað rólegt eins og þetta hefur verið undanfarið hjá manni það er ágætt líka en annars getur vel verið að maður kíki eitthvað út. En ég hef eigilega ekkert meira að segja núna svo ég hef þetta gott í bili.

Ég eldhress á föstudegi fyrir gamlárskvöld að spila púl var að klára eitt geimið þarna þegar þessari mynd er smellt og er greinilega nokkuð sáttur við þetta allt saman...

kveðja viddinn


» 15 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 18:41:16 / viddinn

Ég er enn á lífi...

jamm maður er enn lifandi, helgin var bara heavy róleg var að vinna alla helgina því miður en maður gat nu gert eitthvað samt, kikt á stylinn á fostudaginnn með valla og söru og svo video, leigdum deuce bigalow european gigalow og svo bara snemma íháttinn, mætti svo galvaskur i vinnu a laugardaginn klukkan tiu og var til 7 for reyndar klukkan half 6 og horfdi áliverpool og kom svo aftur 15 min yfir 7 og lokaði og for heim, keypti mer pizzu og horfdi á einhverja mynd bara i rolegheitunum og sofnaði svo snemma og mætti i vinnu 11 i gærmorgun og var til 6 og ekkert að gera, svo var skellt sér með halla og palma i bio á hostel, brunuðum i smarabio klukkan 8 og það var uppselt svo við renndum i regnbogann og náðum miða á sýningu klukkan 9, fórum i millitiðinni á aktu taktu og tókum einn sveittan hammara og franskar, myndin var svona tokkalega geðveikislega ógeðsleg og mátti sjá marga hylja andlit sín með úlpum ogöðru slíku, þar á meðal hann Halli.... Annars var helgin bara hin ágætasta skomm, maður mætti svo i vinnu 7 i morgun griðarhress og drullaði sér heim fyrir 5, ætla að passa fyrir söru i kvold þaðer svo sem i lagi tvi eg ætla bara að horfa á o.c og gera eitthvað minna en eg er farin nunauti sjoppu að fámér aðéta...

kveðja viddinn...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2